01
Lokað umhverfi
Flæðin eru skrifuð í webMethods Designer og keyrð í sérstöku keyrsluumhverfi. Breytingar krefjast fólks sem kann á þetta verkfæri, ekki bara góðs forritara.
Útleiðing Software AG webMethods
Við sérhæfum okkur í að hjálpa fyrirtækjum á Íslandi að útleiða legacy tól eins og Software AG webMethods og flytja viðskiptaferla sína yfir í Temporal. Einn ferill í einu, með samanburði, þar til hægt er að slökkva á gamla kerfinu.
01 — Vandinn
01
Flæðin eru skrifuð í webMethods Designer og keyrð í sérstöku keyrsluumhverfi. Breytingar krefjast fólks sem kann á þetta verkfæri, ekki bara góðs forritara.
02
Sérhæfð þekking getur verið dýr og erfið að manna. Þegar þekkingin hverfur sitja eftir ferlar sem enginn þorir að snerta á.
03
webMethods er ekki opinn hugbúnaður og leyfisgjöldin kosta sitt. Kostnaðurinn helst á meðan kerfið stendur í stað.
02 — Temporal
Temporal er hannað fyrir ferla sem tengja saman kerfi, halda utan um langvinn verkefni og bíða eftir aðgerðum eða svörum. Án þess að missa þráðinn.
01
Ferillinn heldur ástandi sínu þótt þjónn bili, endurræsist eða bíði.
02
Þið skrifið í tungumálum eins og Java, Python, .NET eða TypeScript. Sömu próf, sama útgáfustýring og sama rýni og á öðrum kóða.
03
Endurtekningar, tímamörk og öll keyrslusagan fylgja með. Hægt er að sjá alla sögu ferilsins frá upphafi til enda.
04
Temporal er opinn hugbúnaður. Þið getið keyrt þjóninn sjálf án leyfisgjalds, eða notað Temporal Cloud þar sem kostnaðurinn er mjög sanngjarn.
03 — Munurinn
Samþættingarkerfi, eins webMethods, TIBCO og MuleSoft, halda ykkur föstum í hönnunartólum sem fáir þekkja auk þess sem það er erfitt að hagnýta gervigreind í þannig umhverfum.
Temporal er auðvitað líka kerfi sem þið reiðið ykkur á en ferlarnir verða að kóða í tungumálum sem forritarar og gervigreind skilja.
04 — Aðferðin
Við byrjum ekki á því að slökkva á webMethods. Við byrjum á einum ferli sem hægt er að bera saman við þann gamla.
01
Við förum yfir ferlana sem raunverulega keyra: þjónustur, tengingar við kerfi, tímasett verk og villumeðhöndlun. Útkoman er forgangsröðun. Hvað flyst, hverju má slökkva á, hvað á að bíða.
02
Við veljum einn afmarkaðan feril og útfærum hann í Temporal.
03
Nýi ferillinn tekur við á meðan webMethods er enn í gangi. Samanburður og eftirlit.
04
Kóði, próf og rekstur enda hjá ykkar teymi. Markmiðið er að þið getið haldið áfram á Temporal vegferðinni án okkar aðkomu.
05 — Reynsla
Einar, stofnandi ForritunEJ, vann í webMethods samþættingarteymi Advania (áður fyrr Kögun) á árunum 2006–2019. Í dag nýtir hann sér þá reynslu til að hjálpa fyrirtækjum að útleiða webMethods og innleiða Temporal. Undanfarið hefur ForritunEJ unnið með Sýn við að útleiða þeirra webMethods ferla. Sú vinna hefur fært alla mikilvægustu kjarnaferla þeirra yfir í Temporal og sýnt fram á að hægt er að framkvæma slíka umbreytingu með markvissum og stigvaxandi hætti.
Stutt samtal yfir kaffibolla. Engar söluræður. Við metum hvort Temporal sé rétti kosturinn og hvort við getum aðstoðað ykkur.