01
Mat á umhverfinu
Við kortleggjum ferla, samþættingar, tímasett verk og helstu áhættuþætti. Við segjum líka hreint út ef Temporal er ekki rétta leiðin.
Útkoma Forgangsraðað yfirlit yfir hvað á að flytja, og hvað má bíða.
Þjónusta
Frá umfangi til útfærslu. Við hjálpum þér að meta, flytja og endurútfæra viðskiptaferla og samþættingar. Með áralanga reynslu af webMethods og sérþekkingu á Temporal brúum við bilið milli gamla umhverfisins og þess nýja.
Verkin
01
Við kortleggjum ferla, samþættingar, tímasett verk og helstu áhættuþætti. Við segjum líka hreint út ef Temporal er ekki rétta leiðin.
Útkoma Forgangsraðað yfirlit yfir hvað á að flytja, og hvað má bíða.
02
Þið metið hvort henti betur að reka Temporal sjálf eða nýta Temporal Cloud. Við skilgreinum hvernig lausnin tengist núverandi kerfum, endapunktum, biðröðum og gagnagrunnum.
Útkoma Hönnun sem teymið ykkar getur rýnt áður en innleiðing hefst.
03
Við endurútfærum valda ferla í Java, Python, .NET eða TypeScript, eftir því sem hentar umhverfinu og þekkingu teymisins. Við prófum, keyrum nýja og gamla ferla samhliða og berum niðurstöðurnar saman.
Útkoma Nýr ferill kominn í keyrslu ásamt skýrri áætlun um að leggja þann gamla niður.
04
Kóðinn, prófin og rekstrarþekkingin verða eftir hjá ykkur. Við aðstoðum við CI/CD, eftirlit og miðlum þeirri þekkingu sem þarf til að teymið geti sjálft þróað og rekið næstu ferla.
Útkoma Gamla lausnin hefur verið lögð niður, sú nýja tekið að fullu við og teymið tilbúið að sjá um framhaldið.
Stutt samtal yfir kaffibolla. Engar söluræður. Við metum hvort Temporal sé rétti kosturinn og hvort við getum aðstoðað ykkur.